Róni

Í ljósi atburða í efnahagslífinu síðustu daga hef ég ákveðið að selja allar veraldlegar eigur mínar og gerast heimilislaus róni meðan á þessu stendur.

Þeir hafa það sennilega hvað best þessa dagana.

Hagnaðinn ætla ég að læsa ofan í litla kistu og grafa í jörðu og merkja staðsetninguna á kort sem ég mun bera innanklæða. Hvort eð er tilgangslaust að eiga pening á bankabók þegar verðbólgan étur innlánsvextina.

Nú er bara að ákveða hvar ég vil vera heimilslaus, ef svo má að orði komast. Lítið vit í að vera heimilislaus á Íslandi yfir vetrartímann, hef heyrt að Bahamas sé fínt á þessum árstíma – þar er líka verðbólgan 2.4%.

 

IMG_0326, originally uploaded by Matthew Kendig.