Mikið afskaplega er ég orðinn leiður á þessum tepruskap í ríkisstjórninni okkar. Það er varla ég nenni að lesa fréttir lengur sem kappkosta við að kreista eitthvað áþreifanlegt úr störfum ríkisstjórnarinnar á meðan þær leiða lesanda villum vegar.
Nú er til dæmis uppi fullyrðingar um að fyrirtæki misnoti sér atvinnuleysisbætur og setji fólk á lægra starfshlutfall til að fá atvinnuleysisbætur á móti, en þetta er svo bara á pappírum því fólk er látið vinna fullt starf. Það á náttúrulega bara að taka svona fyrirtæki og beita dagsektum, strax – og ef þau hafa ekki lagað þetta innan 3ja daga þá ganga inn og járna menn. Ekki bara hanga og væla yfir að fólk sé að misnota kerfi, ef það er hægt þá gerir einhver það.
Síðan er mér svoleiðis sléttsama þó það sé ekki hefð fyrir því að fordæma fjöldamorð á börnum og saklausum. Takið bara helvítis fokking fokks afstöðu í einhverjum málum þið svefnvana ríkisstjórn.
Bara eitthvað, segið bara eitthvað afgerandi sem ber vott um sjálfstæða hugsun. Plís.
Ég get reyndar hrósað ríkisstjórninni fyrir snaggaraleg vinnubrögð hjá lögreglustjóranum á Snæfellsnesi. Er ég var á leið akandi til Reykjavíkur hér um daginn keyrði ég greinilega á svoleiðis ofsahraða í Hvalfjarðagöngunum að myndavélin rétt hafði við. Náðist mynd af mér á hreint fáránlegum og ófyrirgefanlegum hraða. 77 km/klst þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. Sektarboðið var komið inn um lúguna heima hjá mér á Akureyri áður en ég var kominn til Reykjavíkur.
Svona á að gera þetta.