Tangueray

Laugardagskvöld og ég er heima að basla í ljósmyndum.

Saturday night Tangueray

Ég veit. Ég er rokkari. Kannski fer ég út að dansa á eftir.

Hér er mynd sem ég tók af Viðey í dag. Er að reyna nýja tækni sem ég er ekki alveg búinn að ná tökum á. En það kemur. Vonandi.

Viðey House

Í guðanna bænum farið varlega.

Nú, þetta er bloggfærsla

Ég veit hvernig við getum leyst vandamálið með plássleysi í fangelsum landsins.

Setjum alla fanga á þing. Af hverju stoppa þar. Setjum alla fyrrverandi fanga líka á þing, það er útsala á uppreisn æru.

Ég veit líka hvernig við getum rýmkað til á elli- og hjúkrunarheimilum landsins, í staðin fyrir að byggja ný.

Seljum allt gamla fólkið okkar sem áhættuleikara í bíómyndum. Það eru allir hvort sem er orðnir ónæmir fyrir óhugnaði ýmiskonar í bíómyndum því við vitum jú öll að þetta er feik, smá ketsjúp og tölvugrafík.

En hvað ef.

Hvað ef við látum gamalt fólk í bíómyndir og leyfum því að upplifa dauðdaga að eigin ósk. Einhver hörgamall karl á elliheimili að bíða eftir dauðanum, af hverju ekki leyfa honum að fara fram af bjargsbrún í brennandi Skoda eftir æsilegan eltingaleik við lögreglu og allt tekið á filmu. Get ábyrgst að það skelkar áhorfendur meira en að sjá afsagaða útlimi sprikklandi á gólfinu.

Aðeins kominn út fyrir efnið hérna.

Ætlaði að blogga um þrá fólks til að benda á augljósa hluti. Það er margt sem fer í pirrurnar á mér og þetta er eitt af því.

“Neisko, það er röð hérna.”

“Naunau, bara kaka.”

Ég er ekki að tala um eitthvað sem gefur fólki tækifæri á að hafa skoðun á, eins og t.d. að eitthvað sé fallegt eða líti út eins og afturendinn á feitri hryssu í rigningu.

Heldur hluti sem eru eins augljósir og að sólin skín.

Eins með spurningar um augljósa hluti, sem gefa þó oftast tilefni til hnyttins tilsvars.

Dæmi um það er þegar ég stóð í lúgunni á Bæjarins Bestu í gær og var spurður að því af vini mínum hvort ég ætlaði að fá mér pylsu. Ég veit ekki hvað í gervallri veröldinni ég gæti verið að gera annað standandi í lúgunni á Bæjarins Bestu en að kaupa mér pylsu, en ég gat svarað því til að ég hafi ákveðið að gefa pylsumanninum allt mitt lausafjár.

Segi þetta gott í bili, en að lokum vil ég benda á að hér aldeilis fyrir neðan er ljósmynd.

A hurt tree

30 tíu íslenskar krónur fyrir leigubíl í Kairó

Tjänare.

Tjänare er útlenska, óformlegt halló.

Gunnar vinur minn er einn að þvælast í Afríku að skoða sand og rífast við leigubílstjóra. Hann er að blogga hér: http://gunnarafrku.blogspot.com/. Ég komst ekki með honum því ég eyði víst öllum peningunum mínum í vín og hórur.

Annars er ég kominn á Hlemm. Átti ansi viðburðarríka helgi í Stokkhólmi. Með viðburðarríkri meina ég að 80% af því er ekki eitthvað sem ég get bloggað um.

Ætla að byrja á því að sýna ykkur sæta mynd af hundi svo þið haldið ekki að ég sé algjörlega búinn að missa það (klikka fyrir stærri).
Say what!
Með þessu vil ég einnig benda á að ég er búinn að opna síðu á hinum geysivinsæla vef Flickr þar sem ég mun setja allar mínar helstu ljósmyndir.

Á fimmtudagskvöldið fór ég út að borða með litlum indverja og kvenmanni frá Rúmeníu. Stefnan var tekin á Indverskan stað en það er ómögulegt að finna þessa indversku staði sökum staðsetningar og því enduðum við á ítölskum stað. Reyndi að panta mér einhverja maískornsmurða hænu en var tilkynnt að það tæki um klukkutíma að útbúa þann rétt. Sorry, whut!

Eftir matinn tók við pöbbarölt en fröken rúmenía helltist fljótt úr lestinni. Kannski orðin þreytt á hetjusögum af íslendingum og hvað við erum ruglaðir – reyndar hló hún allan tímann. Evrópubúi og lítill fyndinn Indverji er ekki samsetning sem sést oft saman úti á lífinu í Stokkhólmi og máluðum við borgina rauða. Verð að ritskoða sjálfan mig en endurtek að við máluðum borgina rauða. Rauða segi ég. Fattiði?

Föstudagskvöldið fór í að éta krabbadýr sem inniheldur lítið sem ekkert af kjöti. Það kvöld endaði eiginlega í rifrildi við leigubílstjóra í Solna. Aftur verð ég að ritskoða sjálfan mig.

Mannlífið í Stokkhólm er hressandi.
Helping hands
Eldsnemma á laugardagsmorgun var ég vakinn við dyrabjölluna sem er neglt upp við hliðin á útidyrahurðina í íbúðinni á Stureplan. Ég ákvað að klæða mig upp með því að fara í stuttermabol og fara til dyra. Jú, var í skærgulum nærbuxum. Móttökunefndin í tröppunum var ekki af verri endanum, ofsasnobbuð kona með her af fólki með sér. Hennar mission var að “redecorate” íbúðina.

Hún valsaði inn í íbúðina og inná mitt stofugólf, gólandi hvernig hún ætlaði að “put some nice flowers and move furnitures”. Ég var með tremma af timburmönnum og á naríunum og spurði náðasamlegast “could I please just put my pants on first”.

Missti svo af fluginu til Íslands á sunnudagskvöldið. Ástæðan er eitthvað sem ég get heldur ekki bloggað um, annað en að ég sat fastur í Arlanda Express lestinni. Frekar óhugnalegur atburður sem átti sér stað þar.

Svonna. Ýtarleg og illa skrifuð greinargerð af því sem átti sér stað undanfarna daga. Áfram að vinna.

Myndatími

Held það sé löngu kominn tími á að sýna ykkur eitthvað af þeim myndum sem ég hef verið að taka undanfarið.

Forces of nature
Strokkur að fara að gjósa.

Eruption
Strokkur í fullri reisn.

Bjánar í tívólí (mynd vantar).

Karl faðir minn þykir einn af þeim svölustu á Norðurlandi eftir að hann keypti sér Hondu Shadow móturhjól. Svart og króm er málið (mynd vantar).

Bachelorette
Rakst á Freydísi fallegu frænku mína í bænum áðan þar sem vinkonur hennar kappkostuðu við að gæsa hana.

Skrifblokk

Það má segja að ég hafi fengið nettan snert af ritstíflu. Það kemur fyrir besta fólk.

Samt er alveg hellingur búinn að ske sem vert er að nefna; vesalings Halldór búinn að gefast upp á þessu, burst Trinidad á Svíum og sitthvað annað sem ég hef ekki hundsvit á en hefði auðveldlega geta soðið saman blogg – ef ekki væri fyrir áðurnefnda ritstíflu.

Veit ekki hvort ég hafi fundið andann aftur, eða hvort ég hafi nokkurn tíman verið með hann.

En ég hef ekki setið aðgerðarlaus síðustu daga og í stað þess að fara rifja upp fréttir og atburði margar dagstundir aftur í tímann get ég sýnt ykkur nokkrar ansi hressandi ljósmyndir.

Water or snow mobile

Cool Means of Transportation

Unstoppable

Þessar myndir eru teknar rétt fyrir miðnætti í Eyjafirði fyrir um viku síðan. Læt þær duga í bili í stað það að blaðra innihaldslaust um loftlagsmengun og næstkomandi borgarstjórn hér í okkar ágæta lýðveldi!