Ég ætla ekkert að reyna leyna því frekar, bróðir minn spurði í gær þegar hann var að skrúfa kúpulinn fastan “hvort það ætti svo ekki bara að taka almennilega á þessu” rétt áður brakhljóð brast við.
Heiðursmaðurinn sem hann er sagðist hann auðvitað þurfa redda mér nýjum kúpul. Sagði honum að vera ekkert að hafa áhyggjur af því, en ég væri búinn með allar gengjurnar mínar.
Seinnipartinn í dag hringdi hann í mig og réð sér vart af kæti í símann. Hann var með nýjan kúpul handa mér í staðinn fyrir þann sem hann braut.
Hann labbaði sumsé léttur á fæti inn í verslun Byko með tvær hendur tómar og gekk út með NÁKVÆMLEGA eins kúpul og mig vantar. Þeir eiga víst svo mikið af þessu að þeir eru í mestu vandræðum var honum sagt.
Ég fór f o k k i n g s þrisvar sinnum í Byko með ljósið með mér og orginal kassann með nafninu og vörunúmerinu. Samt gátu þeir ekki reddað mér eins kúpul á fjórum f o k k i n g s vikum. “Æh úh já þetta ljós….það er sko stjörnumerkt í kerfinu….erum hættir með þessi ljós og ætlum aldrei, aldrei að panta þau aftur….ekki eitt einasta ljós á landinu sýnist mér. Æ æ.”
Veit ekki hvað bróðir minn bað um við starfsmann Byko, annað en að honum vantaði kúpul á útiljós kannski. Ég kann bara og get greinilega ekki átt eðlileg samskipti við starfsmenn byggingavöruverslana.
Héðan í frá stíg ég ekki fæti inn í byggingavöruverslun nema með talsmann með mér sem getur miðlað málum milli mín og sölumanns verslunarinnar.