Það er margt sem jafnvel ég skil ekki í peningamálum þjóðarinnar og lánaveitungum á milli landa. Nú er ljóst að við ætlum að taka nokkrar trilljónir í lán.
Meðal þeirra sem ætla lána okkur eru Bretar og Hollendingar, auðsæilega vegna skulda Icesave. Þannig að þessar þjóðir lána okkur X milljarða sem við skuldum þeim. Hvernig getur einhver verið betur settur eftir það!?
Ef við tækjum okkur til og færum á barinn og þú lánaðir mér 1.200 íslenskar krónur fyrir einum bjór, til þess eins að komast að því að ég neitaði að borga þér tilbaka, myndir þú lána mér aðrar 1.200 íslenskar krónur svo ég gæti borgað þér? Værum við eiginlega ekki bara á nákvæmlega sama stað, nema ég þyrfti að lokum að greiða þér 1.700 íslenskar krónur með vöxtum.
Og hvernig færa menn svona upphæðir á milli landa? Fer sænski fjármálaráðherrann í heimabankann og millifærir nokkuð hundruð milljarða yfir á íslenskan reikning? Kostar ekki nokkrar milljónir í þóknun erlendra seðlabanka fyrir slík millibankaviðskipti? Væri ekki bara betra að einhver færi út og fengi þessa peninga í reiðufé til að losna við slíkt?
Verð bara að fá svör við þessu. Með öllu óþolandi að fjölmiðlar spyrji ekki að svona lykilatriðum.