Opið Hús

Það var haldið opið hús í gærkveldi í óendanlega flottu og smekklega staðsettu íbúðinni minni sem er enn til sölu. Miðað við sögusagnir um lægð á fasteignamarkaði og heljarins allt-er-að-fara-til-fjandans boðskap fjölmiðla mætti halda að engin myndi láta sjá sig.

Það komu níu manns.

Og tveir skoðuðu í fyrradag.

Ellefu manns búnir að skoða í vikunni. Ég þekki ekki einu sinni ellefu manns persónulega. En hinsvegar bólar ekkert á rjúkandi heitum og eggjandi tilboðum – enn.

Ég er farinn að velta fyrir mér hvort fólk sé bara að koma og skoða íbúðina einfaldlega og eingöngu vegna þeirra staðreyndar að ég bý þar. Í staðinn fyrir að fara í Kringluna eða KFC fer fólk að skoða íbúðina sem RobbiK býr í.