robbik.net

Gaurinn sem þú hatar að elska

Mýtur

No comments

Nokkrar algengar spurningar um gekjara eins og t.d. Gjeikarar hoyra næstan bara glaðan dansi-popp, t.d. Vengaboys og Britney Spears! og Gjeikarar eru altíð antin fjákutir kventlar ella leðurklæddir macho-menn við yvirskeggi!.

Hrífandi lesning, meira hér

Greifarnir

No comments

Fyrir norðan var allt gott eins og vanalega og stórfínt alveg, fyrir utan kannski ein mistök sem við gerðum. Þau voru að fara í Sjallann á Greifana. Fyrir utan það að einstaklega fámennt var á svæðinu þá var þessi hljómsveit engan vegin að gefa sig.

Farandfiðlusveit sett saman af nokkrum miðaldra Kartverjum hefði vakið miklu meiri lukku en þessir blessaðir vesalingar. Er ekki komin tími til að Greifarnir hætti þessu, aldurinn hefur ekki farið vel með þá.

Ég man reyndar ekki til þess að hafa farið á ball með þeim áður og veit lítið sem ekkert um þessa hljómsveit. Ástæður þess leyndu sér ekki síðasta laugardagskvöld. Það er ekki verra að kunna á hljóðfæri áður en menn þykjast vera rokkstjörnur Íslands og draumur hverrar konu sem ráfar í sakleysi sínu á ball með þeim.

Ekki er ég mikið fyrir að rakka niður hljómsveitir og yfirleitt er hægt að finna góða hluti, frumlegheit eða metnað. En því er ekki fyrir að finna í þessari hljómsveit og engu líkara en meðlimir hennar spili engöngu til að geta borgað meðlög um borgir og bý. Það leyndi sér ekki að þeir hefðu frekar verið tilbúnir að sitja heima upp í sófa og horfa á góða ræmu.

Myndaalbúm

No comments

Jæja börnin góð, þá er stærsti hlutinn af myndaalbúminu kominn í gagnið aftur…alls eru nú 695 myndir í albúminu (linkur óviðeigandi)!!
En ég er hræddur um að ég verði að biðja alla um að skrá sig aftur, en björtu hliðarnar eru þær að nú þarf bara að logga sig inn á einum stað….ekki spes á robbik.net og spes í albúmið.

Sem fyrr þá er mismunandi hvaða albúm fólk hefur aðgang að, einhver eru opin öllum og einhver aðeins fyrir innskráða. En þannig er nú bara heimurinn í dag.

Ég á eftir að setja inn eitthvað af nýjum myndum (til dæmis úr afmælinu hans Jóns Fannars???), nú er nýjasta albúmið frá afmælinu hans Ragga sem var 15. febrúar síðastliðinn og náttúrulega algjörlega óviðunandi. Það kemur fljótlega, ég er að fara norður á eftir og þá tek ég væntanlega nokkrar myndir.

Njótið!

Hvernig er þetta hægt? Kona í Ísrael gleypir gaffal þegar hún reyndi að ná pöddu sem hafði flogið upp í hana.

“Doctors in Poriah Hospital in northern Israel performed emergency surgery and removed the fork, the Yedioth Ahronoth newspaper reported on Thursday, showing an X-ray of the utensil lodged in her throat. The insect had already been digested. “

Á mánudögum er stundum margt skondið að finna í­ lögregludagbók helgarinnar….eftirtaldi gullmolar eru teknir af mbl.is.
Á Sæbraut var ökumaður stöðvaður er hann talaði í­ farsí­ma, án handfrjáls búnaðar, á meðan hann ók. ökumaður var heldur ekki með öryggisbelti spennt eða með ökuskí­rteini meðferðis.

Flottur, ætli hann hafi ekki verið reykjandi lí­ka með fyrirmyndarökumaður lí­mmiða í­ afturrúðinni?

Um kl. 12.30 á föstudag var tilkynnt um árekstur í­ ártúnsbrekku. Þarna hafði bifreið oltið vegna ofhlaðinnar kerru sem var í­ togi. Best að spara ferðirnar.

Skömmu sí­ðar var tilkynnt um konu sem hafði tekið inn geðlyf sonar sí­ns. Konan var flutt á slysadeild. úpps.

Rétt um kl. ellefu var tilkynnt um mikil læti, rifrildi og hugsanlega átök í­ íbúð einni í­ miðbænum. Um var að ræða erjur milli fyrrverandi sambíýlisaðila sem enduðu með því­ að tvær rúður brotnuðu í­ útihurð. Upptökin áttu sér stað er annar aðilinn ætlaði að fá afhenta tölvu sem hann taldi sí­na eign. Sennilega 2 miðaldra karlmenn sem keyptu sér Playstation 2 saman.

Skömmu sí­ðar var tilkynnt um skemmdarverk við leikskóla. Við nánari athugun reyndist vera um starfsmenn Reykjaví­kurborgar að ræða sem voru að endurbæta skólann. Hvernig er hægt að ruglast á þessu??

Um kl. 8 á laugardagsmorgni var tilkynnt um mann í­ sundskíýlu á gangi milli listaverka á Austurvelli. Reyndist einungis um léttklæddan ferðamann að ræða sem var að njóta listaverkanna. Heheheheh, bwhahahaha, hí­hí­hí­hí

Rétt fyrir kl. 20 var tilkynnt um að útihurð í­búðar einnar í­ miðborginni væri opin og svo hefði verið allan daginn. Engin var heima. Eigandinn var í­ útlöndum og hafði lánað frænku sinni í­búðina í­ sumar. Aldrei að lána frænkum þí­num í­búðina þí­n

Powered by WordPress Web Design by SRS Solutions © 2010 robbik.net Design by SRS Solutions