Megrun

Átakið sem ég réðst í í byrjun mánaðarins gengur ágætlega fyrir sig og sé ég fram á að ná þessu takmarki sem sett var í upphafi.
Ég frétti líka af hópi karlmanna út í bæ sem er í svipuðu átaki, létta sig fyrir jólin, konur þeirra segja víst að þeir vilji “sjá tólin fyrir jólin” og hlægja svo eins og bleik-klæddir feministar. Hressandi það.

Er að fara að setja inn myndirnar úr innflutningspartýinu hans Ragga….

Bloggskortur

Ég viðurkenni það fúslega að hafa verið óstjórnlega latur við að blogga að undanförnu og halda sumir kannski eftir síðustu bloggfærslu að ég hafi hreinlega farist úr óheppni. En það er nú aldeilis ekki. Eina sem hægt er að gera í svona óheppnarástandi er að horfa beint í augun á dýrið og hætta þessu væli.

Ég hef líka aðeins verið að vinna í nýju útliti á robbik.net. Ekki það að ég eigi heiðurinn að því eða þá að það sé eins og ég vilji hafa það, en aðeins skemmtilegra en núverandi þema.

Raggi hélt innflutningspartý um síðustu helgi þar sem ég fékk smá gagnrýni fyrir að vefurinn sé of flókinn. Gagnrýni er af hinu góðu og ekkert nema gott um það að segja, ég ætla samt ekki að gera neitt í þessu…nema þá kannski að reyna að svara fólki með Spurt Og Svarað (SOS). Ég minni fólk líka á Remember me sem hægt er að haka í til að þurfa ekki að logga sig inn í hvert skipti!

Myndirnar frá þessu innflutningspartýi eru ekki komnar inn vegna þess að myndavélin mín er ennþá hjá Ragga, skil ekkert í honum að vera ekki búinn að setja þetta inn sjálfur…Ég reikna samt staðfastlega með því að það verði Idol partý heima hjá honum í kvöld – erþaggi?

Óheppni

Hafi þið tekið eftir því hvernig ólukkan gengur stundum yfir mann í bylgjum. Allt getur verið í himnalagi svo dögum skipti, með þig og stöffið þitt. En svo byrjar eitt að bila, svo næsta og næsta líkt og pissandi fjósabeljur.

Tölvan mín er t.d. eitthvað búin að vera að stríða mér en ég held ég sé búinn að komast að því hvað er að henni. BIOSinn á skjákortinu er sennilega eitthvað spilltur eftir að ég reyndi að troða inn reklum fyrir sjónvarpskortið með handafli.
Svo í gær ákváðum við að prófa þessu nýju brú á Reykjanesbrautinni, keyra yfir hana og þá leið heim….vill ekki betur til en að bíll kemur aðvífandi og steinn spýtist með þvílíku afli í framrúðuna hjá mér að það kom bara gat. Kannski ekki gat en sprunga.
Í gærkveldi ákváðum við svo að fá okkur bragðaref. Minns fékk sér bragðaref með jarðaberjum, banönum og Mars. Það vildi nú ekki betur til en svo að meðan ég var að bragða á refnum brotnaði stykki úr einum jaxlinum á mér, eins og til að renna stoðum undir frétt Baggalúts um Íssvik. Hvað er málið með það? Getur þú ekki skellt gulli þarna í staðinn Jói???

Á leiðinni í vinnuna í morgun varð ég svo var við einkennilegt hljóð í miðstöðinni…held að það hafi samt bara verið nett paranoja. En ég er að spá í að halda mig bara innandyra á næstunni!

Lífslíkur Svía meiri en Svía

Alveg fer mbl.is stundum á kostum. Frétt um að Svíar skeri sig úr öðrum Norðurlandaþjóðum. Þeir skera sig meira segja svo mikið úr að þeir skera sig úr sjálfum sér:
Þar [í Svíþjoð] er hlutfall eldri borgara hærra en á nokkru öðru Norðurlandi og lífslíkur Svía eru meiri en Dana, Normanna og Svía; eingöngu Íslendingar verða eins gamlir og Svíar.

Det var bra i Sverige!

Átak

Ég er víst búinn að heita því að léttast um 2 kg fyrir mánaðarlok, annars skulda ég kassa af bjór.

Ætti nú ekki að vera alltof erfitt ef mér tekst að hafa hugann við þetta lengur en 2 daga.