Ferðasaga

Um helgina fór ég til Akureyrar að spóka mér, og öðrum. Á Akureyri er gott að vera, þar er skortur á vindi og regnvatni, þar kann fólk að keyra og fjarlægðin gerir fjöllin blá og stutt á milli staða.

Á föstudagskvöldið fór ég í skoðunarferð um Ölgerðina til að ganga úr skugga um að nóg væri af byrgðum fyrir mig og Norðurland um helgina. Svo reyndist vissulega vera þar sem síðar um kvöldið stóð ég uppá sviði og söng Greese lag í karókí, ásamt 3 öðrum nóta bene. Merkilegt fyrirbæri, Karókí. Er við mættum á svæðið voru þar staddar tvær (jafnvel þrjár eða fjórar) meyjar sem stunda þetta greinilega af miklu kappi. Get ég ekki sagt að píkuflautur þeirra hafi verið heillandi. En fólkið ég var með stóð sig með miklum ágætum og á vissulega skilið lof í lófa fyrir hetjulega frammistöðu.

Laugardagskvöldið var að sjálfsögðu líka tekið með trompi þar sem huti af kvöldinu fór í stórmerkilega og uppbyggilega umræður við mjög svo ágætis hjón á Karólínu, töff fólk þar á ferð. Síðan var litið í Sjallann, svona rétt upp á djókið og aðallega svo ég þurfi ekki að gera það um jólin, get sagt að ég sé búinn að fara í Sjallann a.m.k. einu sinni síðastliðið hálft ár.
Það sem er merkilegt þar er að búið er að opna Kjallarann aftur og samanstendur nú af snyrtimennsku og eldhúsi. Ekki slæmt að komast beint úr Sjallanum og niður í Kjallara og fá sér almennilega að éta. Mæli með því. Jafnvel hægt að sleppa Sjallanum.

Botn málsins er samt sá að Akureyri rokkar feitast.

Nýtt útlit

Þá er robbik.net komin í nýjan búning, aðeins ferskari en gamla útlitið. Eller. Kannski svolítið væmið en samt þannig að siðferðiskennd lesenda fer ekki út fyrir skilgreind mörk.

Breytingar

Kvenmönnum finnst gaman að breyta. Breyta hárinu, útlitinu, fæðu og uppröðun húsgagna. Þegar karlmenn eiga síst von á, fá þeir að heyra orðin “Mig langar að breyta í stofunni”! Ó jollí gúddí alltílægi, ég get fallist á það að breyta í stofunni….ekki að það sé nauðsynleg þörf á því til að viðhalda gangi lífsins heldur segja fræðimenn að breytingar séu af hinu góða. Til hvers að hafa fræðimenn ef þeir tala tóma steypu allan tímann.

En er ekki fulllangt gengið þegar heitmey mín til margra ára klippir framan af öðrum sokkinum mínum þar sem ég ligg í mestu makindum upp í sófa og spái í nýafstaðnar breytingar. Það að raða upp húsgögnum krefst útsjónarsemi og snilligáfu og ekkert hægt að gróðursetja húsgögnin af handahófi. Því þarf að spekúlera í hlutfalli húsgagna og rýmis.

Reyndar er það nú þannig þar sem ég bý nú að íbúðin er eiginlega heldur of stór – já, of stór. Þetta lýsir sér í erfiðleikum með að fylla út í kima og króka í einu stærsta stofu- og svefnherbergisgímaldi sem fyrirfinnst í leiguhúsnæði á höfðuborgarsvæðinu. Því höfum við farið að gjóa glyrnunum að húsnæði til kaupa, en það er beinlínis vont að lesa lýsingarnar á sumum íbúðunum. Á fasteignavef mbl.is er t.d. að finna lýsingar á borð við “Góð hæð á tveimur hæðum” og “Herbergi dúkalagt með fataskáp”, gat nú verið að þetta Innlit-Útlit wannabees dúkaleggi herbergi með fataskápnum sínum.