Ránalda

Afskaplega finnst mér sorglegt að menn skuli fremja vopnað rán í Bónus verslun. Hefur þetta fólk engan metnað fyrir því sem það er að gera. Eitt er að ræna banka, en Bónus er eitthvað sem ég næ ekki uppí. Hvað ætlaru að taka, nokkra þúsundkalla og svo 89 cm. háan búnka af debet- og kredit nótum. Það borgar engin með pening í Bónus.

Hvernig væri svo að taka þýfið og setja það í eitthvað annað en poka merktum Bónus, þetta er eins og í Andrésar-blöðunum þar sem Bjarnabófarnir voru með þýfið í brúnum taupokum merktum $$. Hafa svo einn flóttabíl og skipta um bíl fljótlega.

Horfir þetta fólk aldrei á bíómyndir??

Hvernig á að drepa lífseigan silung

Fékk þetta í t-pósti.

Heiða litla var 10 ára gömul og forvitin eins og aðrar stelpur á hennar aldri. Hún hafði stundum heyrt stærri stelpur tala um að vera með strák og þegar hún var búin að brjóta heilann um það í nokkurn tíma, hvernig það færi fram, fór hún til móður sinnar og spurði hana um þessa hluti. Það var lítið um svör hjá mömmunni, sem roðnaði bara og fór hjá sér. Í staðinn ráðlagði hún henni að fela sig á bak við gluggatjöldin í herbergi stóru systur sinnar, þegar hún kæmi með strák næst. Hún gerði það og daginn eftir lýsti hún atburðarásinni fyrir mömmu sinni.

Systa og vinur hennar sátu saman og töluðu í smástund, en þá stóð hann upp, slökkti á flestum ljósum og fór að kyssa hana og faðma hana að sér. Ég held að systa hafi verið hálf lasin, því að hann fór með höndina inn undir blússuna hennar, til að finna hjartað, alveg eins og læknirinn gerir. Nema hvað hann er ekki eins klár og læknirinn. Hann ætlaði aldrei að finna hjartað í henni.

Kannski hefur hann verið eitthvað lasinn líka, því að eftir smástund voru þau bæði farin að mása og stynja. Honum hlýtur að hafa verið kalt á hinni hendinni, því að hann brá henni undir pilsið hennar. En þá versnaði systa bara. Hún fór að andvarpa og sundi þungan. Svo engdist hún sundur og saman og renndi sér neðar í svefnsófann. Það var þá sem hún fékk hitann. Ég veit að hún var með hita, því að hún sagðist vera orðin sjóðandi heit.

Loksins komst ég að því hvers vegna þau urðu svona veik. Lifandi silungur hafði einhvern veginn komist inn undir föt stráksins. Svo stökk hann út úr buxunum hans og stóð út í loftið, ábyggilega 20-25 cm langur. Ég get svarið það. Strákurinn greip utan um hann til hann slyppi ekki burt. Þegar systa sá hann varð hún skelfingu losstin. Hún glennti upp augun, munnurinn seig galopinn niður og hún fór að ákalla Guð og svoleiðins. Hún starði á fiskinn og sagðist aldrei hafa séð neinn svona stóran. Hún ætti að sjá nokkra af silungunum, sem við pabbi veiddum í sumar.

En hvað um það. Systir hleypti í sig kjarki og reyndi að bíta hausinn af fiskinum. Allt í einu heyrðust undarleg hljóð í henni og hún lét hann lausan. Hann hefur líklega bitið hana til baka. Þá greip hún utan um silunginn með báðum höndum og hélt hoinum föstum, meðan strákurinn tók upp munnkörfu eða eitthvað svoleiðins upp úr vasanum og renndi henni yfir hausinn á kvikindinu, svo að það gæti ekki bitið hana aftur. Þá lagðist hún á bakið og glennti sundur lappirnar tilað hún gæti klemmt silunginn saman og vinur hennar hjálpaði til með því að leggjast ofan á hann, þar sem hann lá milli fótanna á henni.

En silungurinn barðist upp á líf og dauða. Systa fór að kveina og veina og strákurinn átti fullt í fangi með að halda sér ofan á henni. Ég held að þau hafi ætlað að drepa silunginn með því að kreista hann á milli sín.

Eftir svolitla stund hættu þau að hristast til og gáfu frá sér heilmikið andvarp. Strákurinn stóð upp og mikið rétt, hann var búinn að drepa silunginn. Ég vissi að hann var dauður vegna þess að hann hékk máttlaus út úr buxnaklaufinni og eitthvað af innyflunum stóð út út honum.

Systa og strákurinn voru náttúrulega dálítið þreytt eftir bardagann, en þegar þau voru búin að hvíla sig dálitla stund fóru þau að gæla við hvort annað.

Hann byrjaði að faðma hana og kyssa aftur. En, svei mér þá, silungurinn var ekki alveg dauður. Hann byrjaði að tútna út og þaut upp einu sinni enn, svo að þau fóru aftur að slást við hann. Þessir fiskar eiga ábyggilega níu líf, eins og kettirnir.

Í þetta sinn reis Systa upp og reyndi að kála silungum með því að setjast ofan á hann. Eftir hálftíma baráttu, tókst þeim að drepa silunginn. Ég veit að hann var endanlega dauður, vegna þess að strákurinn fletti roðinu af honum og henti því í klósettið.

“Mamma, af hverju ertu svona skrýtin í framan?”

Hvaða OS ert þú?

Nú mæli ég með því að allir sem lesa þetta taki sig saman í andlitinu og taki stórskemmtilega próf sem segir þér hvaða stýrikerfi þú líkist mest.

Þetta segir mér mun meira um ykkur heldur en t.d. 30 mín. samræður um línuívilnun.

Allir að pósta niðurstöðunum sínum sem athugasemd!!

Engin sprengja, aðeins vélbyssur

Það fannst svo engin sprengja í tékknesku vélinni, en þeim mun meira af vélbyssum eða um tvö tonn (stendur reyndar tvö tönn í fréttinni eins og mbl.is er einum lagið). Ekki er talið að um vopnasmygl sé að ræða.

Vopnasmygl eður ei, ekki væri ég spenntur fyrir því að fljúga í farþegavél ásamt nógu mikið af vélbyssum til að vopna heilan her. Skítsama þótt skotfæri séu til staðar eða ekki, þetta er náttúrulega bara glæpsamlegt.

Og ef ekki er um vopnasmygl að ræða, eru þá Bandaríkjamenn að flytja skotvopn milli heimshluta með farþegaflugvélum?