robbik.net

Gaurinn sem þú hatar að elska

Browsing Posts in Videos

Mjóifjörður

2 comments

Fróðir menn segja að það sé einstök upplifun að keyra af Mjóafjarðarheiði svo til beint ofan í Mjóafjörð.

Í lok júlí í sumar dvöldumst við vikudvöl í sumarbústað fyrir austan og keyrðum út um allt. Austfirðirnir voru þræddir í hinni margrómuðu austfjarðarþoku og rigningu, hefðum alveg eins getað verið að keyra Eyjafjarðarhringinn endalaust.

Svona var umhorfs á Mjóafjarðarheiði þegar við keyrðum hana, þurfti snarlega að beygja undan jeppa sem greinilega taldi sig eiga einhversskonar yfirráðarrétt yfir malarvegum landsins. (Mæli að sjálfsögðu með HD ef þið höndlið það).

You need to install or upgrade Flash Player to view this content, install or upgrade by clicking here.

Windows 7 eða KDE

1 comment

Ok. Windows 7 er næsta útgáfa af Windows sem á að taka við af Vista (sem floppaði algjörlega). Hér er myndband þar sem grunlausir notendur halda að KDE sé nýja útgáfan af Windows…og missa vatn yfir hvað notendaviðmótið er auðvelt og þægilegt. KDE er eitt af mörgum gluggakerfum til handa fyrir Linux notendur.

YouTube Preview Image

Linux stýrikerfið lítur betur út, virkar betur, er frítt af vírusum og rokkar í alla staði. Windows er úti. Baráttan um skjáborðin í framtíðinni er á milli Linux og Makka.

Staðreyndin er að Microsoft er sífellt að rembast við að koma fram með nýjungar sem hafa verið til staðar fyrir open source notendur í marga mánuði :) En ef ykkur langar að vita það þá nota ég Gnome dags daglega…en ég hef valið.

Kanadísk samstarfskona mín telur þetta m.a. geta verið ástæðuna fyrir því að við Íslendingar “deitum” ekki svo mikið.

YouTube Preview Image

g-speak

2 comments

Nauðsynlegt til að skoða mbl.is og tölvupóstinn…

http://www.vimeo.com/2229299

http://oblong.com/

Adam Hills

No comments

Mér bent var á þessa klippu og pósta á til með þar sem ég af hlátri grét

YouTube Preview Image

Hér meira.

Powered by WordPress Web Design by SRS Solutions © 2010 robbik.net Design by SRS Solutions