robbik.net

Gaurinn sem þú hatar að elska

Browsing Posts in Photos

Ég er allur að koma til takk fyrir að spyrja. Datt í huga að sýna ykkur nokkrar ljósmyndir sem innihalda manneskjur í hið minnsta. Fólk sem deildi með mér helginni í Skagafirði.

Engin mynd af mér reyndar, því miður. Vantar líka mynd af Þuru en myndavélin mín varð batteríislaus og ég stóð í þeirri meiningu að ég hefði ekki tekið hleðslutækið með. Alger synd þar sem hún er fótógenísk með meiru. Kom svo á daginn að ég var með hleðslutækið með mér!

Allavegana.


Þennan þarf vart að kynna, Ragnar stórkaupmaður. Var að prófa svona skuggamyndir, finnst þessi bara nokkuð skemmtileg.


Sigurður Th.


Áslaug


Berglind


Benni

Mikið rosalega langar mig í appelsínu.

En. Byrjum á því að gera síðuna ögn meira aðlaðandi fyrir Google. Mæli ekki sérstaklega með því að fólk rýni of mikið í eftirfarandi:

‘fuck’, ‘cunt’, ‘fucker’, ‘fucking’, ‘pussy’, ‘cock’, ‘c0ck’, ‘cum’, ‘twat’, ‘clit’, ‘bitch’, ‘pron’, ‘free’, ‘fuk’, ‘fuking’, ‘motherfucker’

Smá tilraun til að sjá hvort fólk fari að droppa inn á síðuna með því að googla eitthvað af þessum orðum.


Svvoooo….ég fór til læknis í dag. Engar áhyggjur, ekkert alvarlegt. Nú á ég nokkra vini sem stunda nám í læknavísindum og meira segja einn sem er útskrifaður. Þess ber að geta að ekkert af þeim tók á móti mér en þetta unga fólk hefur komið upp ákveðinni paranoju hjá mér.Ég bíð nefninlega eftir að læknirinn strappi á sig latex hönskum og stingi puttunum á sér svo langt upp í rassinn á mér að hann getur gripið í naflann innanfrá og byrjað að láta hann syngja.

Það er rétt, ég er orðinn mannleg sokkabrúða alltíeinu.

Hafi þið hitt hóp af læknanemum?

Þessi umræddi læknir sérfræðir sig reyndar í allt öðrum fræðum en tengjast innvortis naflasöng og ég þurfti ekkert að fækka klæðum.

Ég reyndi.

En hann skipaði mér í fötin aftur.


Fór í sund áðan, fer sundum í stund, stundum í sund meina ég…og syndi. Eða, hef farið allavegana fimm sinnum. Tvö skiptin synti ég ekki neitt.Eftir að hafa tekið sundsprett sem hæfir ólympísku umhverfi er notalegt að fara í pottinn. Eftir smá tíma var þó heldur farið að þrengja að í pottinum þannig að ég skellti mér í gufubaðið.

Gufubaðsklefinn í þessari laug er sirkabát 1,35 fermetrar. Ég er búinn að vera þar í nokkrar mínútur þegar riðandi ýstrubelgur kemur inn og fer að gera einhverjar fornkínverskar leikfimisæfingar.

Frábært. Alveg upp við mig.

Á milli æfinga og í gegnum rembinginn spyr hann mig skyndilega hvar ég hafi fengið þessa sundskýlu sem ég sé í.

Afskakið, whut?

Ég svara því til að ég hafi keypt hana í Mexíkó. Það er reyndar ekki alveg satt og ég fattaði það eftir á, ég keypti þær ábyggilega á Ibiza. Ég var í speedo á Mexíkó. Merkilegt hvað maður þroskast á einu ári.

Og svo lítið sem ekkert eftir það.

Allavegana. Næst kemur einhver setning hjá honum sem ég náði ekki alveg en innihélt meðal annars eftirfarandi frasa: “Indverskar lögreglukonur eru heimskar”, “landamærin við Mexíkó”, “landamærin við Kanada” og “var ekki með dóp”. Hann lenti sumsé í því að það væri leitað á honum og bílnum við einhver landamæri.

Það er ekkert voðalega þægilegt að fá hláturskast í gufubaði. Hláturskrampa sem þú verður að bæla niður. Óþægilega mikil gufa inn um nefið.


Mikið er frábært að Sirkus sé að sýna David Letterman. Nenni samt ekkert að tala meir um það heldur kominn tími á tvær ljósmyndir.Kasper og Pjakkur í hressandi riskingum. Þess ber kannski að geta að þessir tveir eru mestu mátar!

Kasper og Pjakkur taka dansKasper og Pjakkur í Hlíðarfjalli

Gammana’essu.

Powered by WordPress Web Design by SRS Solutions © 2010 robbik.net Design by SRS Solutions