Flóðgátt

Flóðgáttin sem opnaðist í dag er í besta lagi hlægileg. Þingmenn eru margir hverjir orðnir móðir að hvítþvo sig og sinn flokk í viðtali við fjölmiðla.

Ég fæ óbragð í munninn, svona blöndu af uppgangi og rassasafa, við að hlusta á þingmenn sem sátu í ríkisstjórnarflokki halda því fram að  þeir hafi vitað allt um ástandið og reynt að gera eitthvað í þessu. Það var bara svo erfitt að vinna með hinum flokkinum, búhú hú!

Sá þingmaður sem hefði sleppt því að fara í sandkassaleik við fyrrverandi samtstarfsflokk hefði fengið smá vott af virðingu frá mér – en engum þeirra tókst að sitja á sér. Og svo vill þetta fólk meina að það vinni fyrir fólkið í landinum.

Tepruskapur

Mikið afskaplega er ég orðinn leiður á þessum tepruskap í ríkisstjórninni okkar. Það er varla ég nenni að lesa fréttir lengur sem kappkosta við að kreista eitthvað áþreifanlegt úr störfum ríkisstjórnarinnar á meðan þær leiða lesanda villum vegar.

Nú er til dæmis uppi fullyrðingar um að fyrirtæki misnoti sér atvinnuleysisbætur og setji fólk á lægra starfshlutfall til að fá atvinnuleysisbætur á móti, en þetta er svo bara á pappírum því fólk er látið vinna fullt starf. Það á náttúrulega bara að taka svona fyrirtæki og beita dagsektum, strax – og ef þau hafa ekki lagað þetta innan 3ja daga þá ganga inn og járna menn. Ekki bara hanga og væla yfir að fólk sé að misnota kerfi, ef það er hægt þá gerir einhver það.

Síðan er mér svoleiðis sléttsama þó það sé ekki hefð fyrir því að fordæma fjöldamorð á börnum og saklausum. Takið bara helvítis fokking fokks afstöðu í einhverjum málum þið svefnvana ríkisstjórn.

Bara eitthvað, segið bara eitthvað afgerandi sem ber vott um sjálfstæða hugsun. Plís.

Ég get reyndar hrósað ríkisstjórninni fyrir snaggaraleg vinnubrögð hjá lögreglustjóranum á Snæfellsnesi. Er ég var á leið akandi til Reykjavíkur hér um daginn keyrði ég greinilega á svoleiðis ofsahraða í Hvalfjarðagöngunum að myndavélin rétt hafði við. Náðist mynd af mér á hreint fáránlegum og ófyrirgefanlegum hraða. 77 km/klst þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. Sektarboðið var komið inn um lúguna heima hjá mér á Akureyri áður en ég var kominn til Reykjavíkur.

Svona á að gera þetta.

Davíð veit ekkert

Komm’on segi ég nú bara og skrifa. Davíð veit akkúrat ekkert um það af hverju Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn okkur. Hann veit nákvæmlega jafn mikið um það og vallhumall um eigin tilvist.

Hann er bara að stríða okkur og fjölmiðlum, draga athyglina og eyða tíma frá öðrum málum. Málum sem mögulega væri hægt að fá svör við ef allir eyddu ekki tíma sínum í að elta kalla eins og Davíð.

Gleymum Davíð.

Svartur kassi

Ég er staddur hér í íbúð í kjallara því sem virðist vera 15.000 fermetra húsnæði með fáguðum svörtum og ryðlitum klæðningum. Ég er einn í þessu húsnæði eftir því sem ég best veit. Þessi svarti kassi er staðsettur í jaðri höfuðborgarsvæðisins og vindurinn hvæsir um alla króka og kima þessa risamannvirkis. Er ég horfi út um gluggann yfir tómt bílastæðið sé ég gríðarlegt skrifstofuhúsnæði sem er sjálfsagt yfir 27.000 fermetrar.

Þessi steypuklumpur gegnt mér hefur enga veggi, heldur einungis hæð eftir hæð af gólfflötum og sverum steypusúlum til að halda þessu uppi.

Það hefur verið hætt við þessa byggingu.

Þið vitið. Sökum kreppunar.

Þetta verður því sjálfsagt einn af stærstu minnisvörðum okkar um þá tíma sem fara nú í hönd.