HItabylgja

Þessi hiti hér inni á skrifstofunni minni (annars er ég náttúrulega bara forritari í bás) er nú aldeilis óvæntur og hefur mér oft brugðið all meira við minni röskun hversdagsleikans.

Annars var ég að frétta það að ég er komin með miða á Foo Fighters, ekki ónýtt það!! Það sem meira er, ég var að versla mér nýjan sófa og hann er sko ekki ónýtur (þó hann sé reyndar ónýttur). Sófi þessi er gæddur þeim hæfileikum að geta breytt sér í rúm á svipstundu og því nóg pláss til að gista hjá mér…

Merkilegt hvað þessi orð eru lík, ónýtt og ónýtt, svei mér þá ef þau eru ekki nákvæmlega eins og þýða nákvæmlega sitt hvorn hlutinn. Skrýtið er nú mannlega málið!!

Skráning

Þegar þið skráið ykkur eigi þið að fá póst “samstundis” með lykilorði. Hins vegar hefur eitthvað borið á því að fólk hafi ekki fengið þennan póst. Ef ekki sendið mér þá póst með login nafni og ég redda þessu fyrir ykkur.

Mýtur

Nokkrar algengar spurningar um gekjara eins og t.d. Gjeikarar hoyra næstan bara glaðan dansi-popp, t.d. Vengaboys og Britney Spears! og Gjeikarar eru altíð antin fjákutir kventlar ella leðurklæddir macho-menn við yvirskeggi!.

Hrífandi lesning, meira hér

Greifarnir

Fyrir norðan var allt gott eins og vanalega og stórfínt alveg, fyrir utan kannski ein mistök sem við gerðum. Þau voru að fara í Sjallann á Greifana. Fyrir utan það að einstaklega fámennt var á svæðinu þá var þessi hljómsveit engan vegin að gefa sig.

Farandfiðlusveit sett saman af nokkrum miðaldra Kartverjum hefði vakið miklu meiri lukku en þessir blessaðir vesalingar. Er ekki komin tími til að Greifarnir hætti þessu, aldurinn hefur ekki farið vel með þá.

Ég man reyndar ekki til þess að hafa farið á ball með þeim áður og veit lítið sem ekkert um þessa hljómsveit. Ástæður þess leyndu sér ekki síðasta laugardagskvöld. Það er ekki verra að kunna á hljóðfæri áður en menn þykjast vera rokkstjörnur Íslands og draumur hverrar konu sem ráfar í sakleysi sínu á ball með þeim.

Ekki er ég mikið fyrir að rakka niður hljómsveitir og yfirleitt er hægt að finna góða hluti, frumlegheit eða metnað. En því er ekki fyrir að finna í þessari hljómsveit og engu líkara en meðlimir hennar spili engöngu til að geta borgað meðlög um borgir og bý. Það leyndi sér ekki að þeir hefðu frekar verið tilbúnir að sitja heima upp í sófa og horfa á góða ræmu.

Myndaalbúm

Jæja börnin góð, þá er stærsti hlutinn af myndaalbúminu kominn í gagnið aftur…alls eru nú 695 myndir í albúminu (linkur óviðeigandi)!!
En ég er hræddur um að ég verði að biðja alla um að skrá sig aftur, en björtu hliðarnar eru þær að nú þarf bara að logga sig inn á einum stað….ekki spes á robbik.net og spes í albúmið.

Sem fyrr þá er mismunandi hvaða albúm fólk hefur aðgang að, einhver eru opin öllum og einhver aðeins fyrir innskráða. En þannig er nú bara heimurinn í dag.

Ég á eftir að setja inn eitthvað af nýjum myndum (til dæmis úr afmælinu hans Jóns Fannars???), nú er nýjasta albúmið frá afmælinu hans Ragga sem var 15. febrúar síðastliðinn og náttúrulega algjörlega óviðunandi. Það kemur fljótlega, ég er að fara norður á eftir og þá tek ég væntanlega nokkrar myndir.

Njótið!