Stupid White Man

Ekki er ýkja langt síðan ég lauk lestri á bókmenntaverkinu ‘Stupid White Men’ eftir Michael nokkurn Moore. Þó að það sé kannski ekki hægt að taka Moore alltof trúanlegan er hægt að taka hann nægilega trúanlegan til að trúa því að hann sé nokkuð trúanlegur ásamt því að trúa flest öllu sem hann segir.

Í bókinni fjallar hann t.d. um hvernig Bush komst til valda án þess að vera lýðræðislega kosin, hvað svart fólk er svalt, móðir Jörð og meðferð okkar á henni og hvernig karlmenn eru að verða óþarfi með tilkomu meðfærilega álstigans og margt fleira. Með háðung að vopni nær hann að sannfæra mann um hvað allt er að fara til andskotans.

Ég mæli með þessari bók – mjög skemmtileg lesning. Núna er ég svo nýbyrjaður að lesa Che Guevara: A Revolutionary Life eftir Jon Lee Anderson.

MSN

Sá misskilningur virðist vera í gangi að Microsoft ætli að loka MSN Messenger og er engum öðrum en íslenskum fréttamönnum um að kenna. Það sem er verið að loka á eru spjallrásir á MSN vefsetrinu, msn.com, eða Internet Chatroom. Það er líka vitlaust að það verði byrjað að rukka fyrir MSN Messenger. Þessum spjallrásum verður lokað allsstaðar annarsstaðar en í USA, Kanada og Japan þar sem hægt er að nálgast þær í áskrift. Einnig verður rukkað fyrir MSN Explorer (sem er eitthvað krapp sem ég hef aldrei og mun aldrei nota). Sjá nánar á TheStar.com og Reuters.

Ég gat nú ekki annað en hlegið yfir fréttaflutningnum hjá Stöð 2 sem meikaði bara lítið sem ekkert sens vatt só evver.

Ben LOreal

Í gærkveldi varð ég vitni að einni hroðalegustu auglýsingu sem ég hef séð. Ben Affleck að auglýsa sjampó frá LOreal, þvílíkur ófagnaður og viðbjóður. Hann og Jei-ló eru víst hætt saman en fyrr má nú vera aumingjaskapurinn að feta í fótspor hennar með að leika í auglýsingu fyrir sama hárvörufyrirtæki og hún gerði fyrir nokkrum misserum.

Ben er af nýrri kynslóð karlmanna sem sýnir styrk sinn í persónuleikanum og eru ekki hræddir við að una útliti sínu mæ ess, hann er rola og eftir óleik sinn í Daredevil þarf mikið til að leið hans bruni ekki hratt niður á við hér eftir.

Það er ennþá hrollur í mér.

Grasagarður Nó Nó

Eitthvað varð minna úr fyrirhugaðri ferð minni í Grasagarðinn um helgina til að kynna mér nánar atferli grágæsa. Í staðinn eyddi ég helginni á Akureyris, en þar fann ég engar grágæsir þrátt fyrir víðtæka leit. Ég fór á Andarpollinn, í Kjarnaskóg, uppá Hlíðarfjall og niður á Poll en greip allstaðar í tómt. Eini hugsanlega staðurinn sem ég sleppti er Sjallinn en þangað fór ég bara alls ekki, en mig grunar að hægt sé að yfirfæra atferlisfræði grágæsa yfir á mannfólkið í Sjallanum – sérstaklega ef Papar spila fyrir dansi. Goggunarröðin er sjálfsagt alls ekki svo ólík, ef vel er að gáð.

Annars var ljúft á Akureyri og eyddi ég helginni að mest leyti í ró og næði og fáir tilveruskakandi hlutir áttu sér stað. Hjartað droppaði samt tvisvar sinnum í buxurnar um helgina og í bæði skiptin meðan ég var að keyra. Á leiðinni norður á föstudagkvöldið, nánar tiltekið í Öxnadalnum, var einhver afdalabóndi og tómstundarvampíra að heyja í kolniðamyrkri. Ekki var það þó hann sem olli varanlegum hjartaskemmdum heldur hundur sem hljóp skyndilega upp á veginn þannig að ég þurfti að snarbremsa og sveigja frá. Hundur þessi hefur sennilega fylgt hestamönnum sem voru að ríða við hliðin á þjóðveginum og þeim finnst greinilega alger óþarfi að nota endurskínsmerki – fífl.
Í hitt skiptið var ég á leið frá Dallas þegar kynóð lesbía kemur skyndilega vaðandi á móti mér á vitlausum vegarhelming á hjúmongus jeppa. Þá var mér reyndar skapi næst að snúa við á staðnum og elta hana uppi – fífl.

Anna Lindh

17 árum síðar og aðeins 500 metrum frá staðnum þar sem Olof Palme var myrtur. Anna Lindh utanríkisráðherra Svía lést í nótt af stungusárum eftir heiftarlega árás í gærdag.

Alveg er þetta með öllu óskiljanlegt. Þvílík mannvonska, grimmd og geðveila sem fyrirfinnst í heiminum í dag.

Ég vil votta fjölskyldu hennar og Svíum samúð mína.