Ég hef ekkert bloggað um atburði síðustu daga og hrun bankanna, að hluta til vegna vinnu minnar og ég hafði sjálfan mig grunaðan um að geta misst mig aðeins.
Nú er sú staða komin upp sem mann grunaði lengi. Það er alger vitleysa og útúrsnúningur að menn hafi ekki séð þetta fyrir. Fjöldi fræðimanna og dómbærra manna hefur varað við þessu en við búum í bananalýðveldi með óhæfa ríkisstjórn og klíkuskap af verstu sort.
Ég treysti ekki ríkisstjórninni (og hef í raun ekki gert síðan ég fékk kostningarvit), seðlabankanum né fjölmiðlum. Hafið þið t.d. veitt því athygli að margar af þeim fréttum sem birtast á mbl.is um íslenskt efnahagslíf eru teknar upp úr erlendum fjölmiðlum. Í fréttum RÚV í gær kom fram að laun nýja bankastjóra Kaupþings væru 1.950.000 á mánuði, í Kastljósi sem fylgdi á eftir fréttum kom fram að ekki væri búið að semja um laun nýju bankastjóranna.
Og vitleysan heldur áfram. Laun bankastjóra Kaupþings voru sögð í samræmi við forstöðumenn annarrra ríkisstofnanna, hverra? Þessi laun eru t.d. töluvert hærri en hæstu laun stærsta vinnustað ríkisins á meðan ekki er víst að hægt sé að borga þeim starfsmönnum sem koma til með að missa vinnuna. Nýi bankastjóri Kaupþings er líka fyrrverandi ráðgjafi forsætisráðherra.
Hvers vegna var líka efnahagsráðgjafinn rekinn? Var hann með lausn á málinu sem ráðamönnum þóknaðist ekki og lágkúrulegt framtak til að reyna halda í eigið eymingjalegt pólitíska líf.
Að mínu mati þyrftum við að fá hingað erlenda aðila til aðstoðar og taka af allan vafa um klíkuskap og spillingar sem þrífast vel í svo litlu landi.
Hvað getum við svo gert? Hætt að borga af lánunum okkar? Flutt til útlanda?
Mikið er ég samt feginn að vera fluttur út á land, allt miklu auðveldara
Á meðan efnahagslíf þjóðarinn hrundi eins og spilaborg í þarsíðustu viku tókst mér með einhverjum undraverðum hætti að selja íbúðina mína í Reykjavík. Það flokkast eiginlega bara sem jaðarkraftaverk. Á svipuðum tíma lauk mín heittelskaða masters ritgerðinni sinni með stæl.
Þetta kallaði á hátíðarhöld og héldum við heljarins kósí partý um síðustu helgi í góðra vina hópi. Peningar eru ekki allt.
Hey maður. Til hamingju með þína heittelskuðu og að vera laus við íbúðina. Bestu kveðjur norður í snjóinn. Eigum við ekki að fara að plana nýja fjallaferð? Þá jafnvel án díselfýlu.
Takk takk. Ég er alltaf til í fjallaferð maður, helst á sem mest afviknum stað sem ekki er búið að gefa eða veðsetja á erlendum mörkuðum
Já, þeim fer væntanlega fækkandi þegar IMF setur sem skilyrði að við einkavæðum orkugeirann og virkjum allt í heimi til þess að borga fyrir lánið. Þyrftum að græja eitthvað með Stebba þar sem lagt er í hann frá AEY. Það væri snilld.