Róni

Í ljósi atburða í efnahagslífinu síðustu daga hef ég ákveðið að selja allar veraldlegar eigur mínar og gerast heimilislaus róni meðan á þessu stendur.

Þeir hafa það sennilega hvað best þessa dagana.

Hagnaðinn ætla ég að læsa ofan í litla kistu og grafa í jörðu og merkja staðsetninguna á kort sem ég mun bera innanklæða. Hvort eð er tilgangslaust að eiga pening á bankabók þegar verðbólgan étur innlánsvextina.

Nú er bara að ákveða hvar ég vil vera heimilslaus, ef svo má að orði komast. Lítið vit í að vera heimilislaus á Íslandi yfir vetrartímann, hef heyrt að Bahamas sé fínt á þessum árstíma – þar er líka verðbólgan 2.4%.

 

IMG_0326, originally uploaded by Matthew Kendig.

3 thoughts on “Róni

  1. Það að þú skulir titlaður Kommúnisti á síðunni minni mun eflaust bjarga þér eftir komandi byltingu. Þú mátt taka með þér einn geisladisk til Síberíu, hvaða disk ætlarðu að taka?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>