Gilið á Akureyri er sennilega frægasta innanbæjargötubrekka á landinu. Það er greinilega ekki á færi allra ökumanna að keyra upp þessa brekku.
Það er eiginlega með öllu óþolandi að keyra á eftir bíl upp Kaupvangsstrætið sem er á 40 km/klst við gatnamót Eyrarlandsvegar en dettur niður í 15 km/klst efst í brekkunni við Oddeyrargötuna.
Reynið að halda smá takti og ekki væri því nærri stoppi efst. Það endar bara með því að ég keyri aftan á ykkur.
Þetta verður fyrst áhugavert þegar fer að frysta. Þá getur maður t.o.m. átt von á því að menn taki upp á því að bakka.
Já með frostið, ekkert áhugaverðara og líklegra til að gera bringuhárin á manni grá en að horfa á strætó renna sthjórnlaust á móti sér niður gilið….