Blekk

Það er fáránlega skemmtilega mikið að gera hjá mér þessa dagana.

Ég labba í vinnuna á morgnana og rölti heim um kvöldið.

Þegar ég ætlaði að skjótast á bílnum mínum um daginn sá ég hvar ljósbrún könguló var búinn að spinna vef milli annars framdekksins og hjólaskálarinnar. Einhversstaðar verða þær að vera!

Í hádeginu í dag skrapp ég svo upp á höfða til að kaupa mér línuskauta. Keypti mér svarta Salomon skauta.

Þegar ég kom svo út á bílaplan áttaði ég mig á því að þeir pössuðu engan vegin við sansgráa Passatinn minn. Og fyrst ég var kominn svona langt út fyrir miðborgarsvæðið gat ég alveg eins skroppið í B&L.

Þar sem ég keypti þennan bíl:

Passat

Passat 1.8T árgerð 2003 – og svartur.

Og nei ég keyrði ekki upp í móa sérstaklega til að taka þessa mynd heldur lagði ég bílnum þarna meðan ég rúllaði mínum hvíta kúlurassi eftir strandlengju Grafarvogs.

Smekklegt með meiru.

5 thoughts on “Blekk

  1. Ég komst að því á mínum stutta ferli sem línuskautari að eina leiðin til að stöðva sig þegar ég var kominn á einhverja ferð var að láta sig detta (eða skauta á vegg/handrið ef slíkt var við hendina). Spurning af hverju ferill minn var svona stuttur.

    Ertu þá ekki í hjólabuxum og níðþröngum spandexbol þegar þú ert að skauta?

  2. Sæll Willy,
    Jú ég get staðfest að nýji passateigandinn var einmitt í hjólabuxum og spandexbol. Þegar við mættum pari í eins outfitti og passateigandinn hefði mátt halda að alþjóða spandex dagurinn væri upprunninn. Eins og þau hefðu fundið hvort annað.

  3. af einhverjum ástæðum les ég þetta sem passa-teigandi (þó ég hafi ekki hugmynd um hvað það ætti svosem að vera).

    En þó það sé mikið að gera í vinnunni er það engin afsökun fyrir því að koma ekki með íðilferskt afþreyingarefni handa soltnum múgnum daglega inn á robbik.net.

  4. Ég fatta ekki alveg af hverju allir vita að ég er í spandex-óverall þegar ég skauta. Hafi þið séð mig?

    Og passatinn hefur virkilega gert mig að betri manni.

    En það er rétt f.willy., mikil upptekni ef engin afsökun á að koma ekki með brakandi færslur handa ykkur. Skal ganga í það að blogga núna.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>