Af hverju í ósköpunum er LU kex með SMS leik? Hverjir borða LU kex aðrar en hlandskorpnar gamlar kellingar í vesturbænum – sem einnig drekka koffínlaust kaffi?
Einhvernvegin efast ég að markhópur LU kexins sé fremstur meðal jafninga þegar kemur að smáskilaboðum.
Heitir þetta ekki að leita á ný mið? Sennilega hafa framleiðendur LU gefið út memo til helstu markaðsstjóra sinna með heitinu “Brjótumst út úr Vítahring Hlandbrunnina Kellinga” þar sem útlistað var að SMS fíklar dagsins í dag væru enmitt Hlandbrunnar DeCaf drykkjur morgundagsins.
Annars bíð ég þess spentur að tækninni fleygi það mikið fram að markaðssetningar framtíðarinnar hjá LU hljómi einhvernveginn svona;
Senu hugskeyti á sætabrauðshvel stóraheila og þú gætirverið á leiðinni í sýndarferð til Borneó sem Orlando Bloom (eða einhver annar prettyboy sem á auðvelt með að hözla) Skeytið kostar einn Evrudal.
Þegar hugskeyti verður orðin almennur hæfileiki er ég einmitt viss um að LU kex verði með fyrsta HSS-leikinn*.
Nema hvað þessi hlandorpnu skelgamalmenni senda sín HSS seint og illa og lenda flest þeirra á einhverjum saklausum hjólabrettagaur sem skyndilega pissar á sig.
*HSS: HugSkeytaSkilboð
Pingback: robbik.net » Góðir Ökumenn