Tíska

Mikið ofboðslega er ég í flottum fötum í dag. Guði sé lof að ég fæddist með tískuvit og geng ekki um eins og hlandklepraður .NET forritari með mjólkurskegg. Í dag erum fötin mín í mjúkum pastellitum þannig að hörundslitur minn fær að njóta sín til fulls.

Aldrei gæti ég hugsað mér að ganga í biksvörtum buxum og jafnvel svartari skóm – og hvítum sokkum. Ég á ekki eitt par af hvítum sokkum, vegna þess að þeir eru hallærislegir auk þess þarf að þvo þá miklu oftar.

6 thoughts on “Tíska

  1. Hvaða töflur ertu farinn að bryðja Robbi minn??!!
    Ég er líka með símanúmer við þeim vanda;)

  2. Ertu í hörundslituðum hör-strigaskóg:-) Alveg er það dæmalaust smart!

  3. Ekkert hörundslitað nema hör-ið í hörundi mínu….restin er mun öðruvísi á litinn ;)

  4. Ehhh….. Grænlenzki kvenþjóðbúningurinn er það sem ég kýs mér helst fyrir aflsappandi sunnudag uppí sófa með þýzka boltanum, og já, það kemur fyrir að ég er í hvítum sokkum.

  5. þú getur nú bara sjálfur verið hlandklepraður!! (óendanleg spegilvörn etc.)

  6. Hmm…er ekki alveg að sjá þessi pastellituðu föt fyrir mér, en þú lítur eflaust mjög glæsilega út. Jafnvel betur en Siggi í grænlenzka þjóðbúningnum?!?!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>