Greifarnir

Fyrir norðan var allt gott eins og vanalega og stórfínt alveg, fyrir utan kannski ein mistök sem við gerðum. Þau voru að fara í Sjallann á Greifana. Fyrir utan það að einstaklega fámennt var á svæðinu þá var þessi hljómsveit engan vegin að gefa sig.

Farandfiðlusveit sett saman af nokkrum miðaldra Kartverjum hefði vakið miklu meiri lukku en þessir blessaðir vesalingar. Er ekki komin tími til að Greifarnir hætti þessu, aldurinn hefur ekki farið vel með þá.

Ég man reyndar ekki til þess að hafa farið á ball með þeim áður og veit lítið sem ekkert um þessa hljómsveit. Ástæður þess leyndu sér ekki síðasta laugardagskvöld. Það er ekki verra að kunna á hljóðfæri áður en menn þykjast vera rokkstjörnur Íslands og draumur hverrar konu sem ráfar í sakleysi sínu á ball með þeim.

Ekki er ég mikið fyrir að rakka niður hljómsveitir og yfirleitt er hægt að finna góða hluti, frumlegheit eða metnað. En því er ekki fyrir að finna í þessari hljómsveit og engu líkara en meðlimir hennar spili engöngu til að geta borgað meðlög um borgir og bý. Það leyndi sér ekki að þeir hefðu frekar verið tilbúnir að sitja heima upp í sófa og horfa á góða ræmu.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>